BARINN Á HÓTEL HOLTI

Gift cards

Offers

Sustainability

 

Sama sætið við arininn, frá 1965

Borgin hefur breyst mikið síðan 1965. Barinn á Hótel Holti hefur haldið sínu: eldurinn logar enn í arninum, frumverk Kjarvals hanga á veggjunum og leðurstólarnir bíða. Hér hittast heimamenn eftir vinnu og fá sér drykk í rólegheitum áður en kvöldið byrjar.

OPNUNARTÍMI BARSINS


Þriðjudaga til laugardaga

kl. 16:00-22:00


Gleðistund þriðjudaga til laugardaga kl. 16:00-19:00

Sjáumst eftir vinnu.

Bar með sögu að segja

Frá árinu 1965 hefur barinn á Hótel Holti verið hluti af menningarlífi Reykjavíkur. Hann var hugsaður sem samkomustaður listamanna, rithöfunda og ferðalanga og hefur haldið yfirbragði sínu frá miðri síðustu öld: dökkum viði, gömlum smáatriðum og andrúmslofti sem er í senn sérstakt og notalegt.


Hér ber hvert horn vott um íslenskan menningararf. Á veggjunum hanga frumverk eftir Kjarval og fleiri þekkta íslenska listamenn, svo barinn minnir frekar á einkagallerí en hótelbar.

 
 

List, arineldur og einstakt andrúmsloft

Barinn einkennist af hlýrri birtu og notalegri nánd. Gestir koma sér fyrir í djúpum leðurstólum við arininn, sem er vinsælasti staðurinn á löngum íslenskum kvöldum, og njóta kokteila umkringdir listaverkum.


Andrúmsloftið er látlaust en vandað: mjúk lýsing, fáguð þjónusta og sú tilfinning að vera kominn inn á rótgróna reykvíska stofnun. Hvort sem þú kemur í fordrykk fyrir kvöldverð, síðasta drykk kvöldsins eða síðdegiskaffi, gerir tímalaus hönnun barsins stundina betri.

Djass á barnum

Á fimmtudagskvöldum fyllist barinn af lifandi djassi. Þekktir íslenskir djasstónlistarmenn stíga á svið innan um listaverkin og tónleikarnir hefjast kl. 18:00. Miðinn kostar 4.500 kr. og velkomstdrykkur er innifalinn. Miðar fást á barnum fyrir tónleikana og gott er að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.

 
 

Kokteilar, vín og íslensk bragðefni

Matseðillinn byggir á klassískri kokteilgerð með nútímalegu íslensku ívafi. Barþjónarnir okkar bjóða upp á sérdrykki innblásna af íslenskri náttúru, gott úrval vína, íslenskt áfengi og vandað viskí, allt lagað af alúð.


Fáðu þér smárétt með drykknum, njóttu rólegs spjalls eða einfaldlega listarinnar í kringum þig. Hér er ekkert að flýta sér.

Í umfjöllun The New York Times Magazine

The New York Times mælir með barnum á Hótel Holti í umfjöllun sinni um Reykjavík. Heimamenn hafa vitað það í áratugi.

 
 

Hotel Holt Bar

Bergstaðastræti 37
101 Reykjavík, Iceland 


  ⸺  bar@holt.is

   ⸺  +354 552 5700