|
Hótel Holt var opnað 12. febrúar 1965.
Húsið var byggt af einum helsta athafnamanni þjóðarinnar á 20. öldinni, Þorvaldi Guðmundssyni, og eiginkonu hans, Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Hótelið hefur ætíð verið í eigu fjölskyldunnar og í dag er Geirlaug Þorvaldsdóttir eigandi þess.
Þau Þorvaldur og Ingibjörg voru miklir listunnendur og gjörvöll byggingin ber vitni um það með málverkum og öðrum listaverkum í öllum rýmum hótelsins.
Upphafið
Hótel Holt var upphaflega 36 herbergja hótel. Árið 1973 var herbergjum fjölgað í 53 en það var síðan árið 1993 sem gerðar voru miklar endurbætur á húsinu og var herbergjum fækkað í 42. Með þessum breytingum var svítum hótelsins fjölgað, eða úr 4 í 12. En tilgangurinn var að mæta kröfum gesta um rúmbetri og þægilegri herbergi. Öll herbergi hótelsins eru sígild í hönnun og einfaldleikinn látinn ráða ferðinni.
Frá árinu 2005 hefur herbergjafjöldi hússins verið 41 herbergi. Það ár var einu herbergjanna breytt í litið heilsræktarherbergi.
En líkt og áður hefur hótelið átt mjög gott samstarf við líkamsræktarstöðina World Class og fá allir gestir hótelsins frían aðgang hjá stöðinni.
Alþjóðlegt samstarf
Hótel Holt hefur verið virkt í alþjóðasamstarfi um árabil. Allt frá 1991 hefur hótelið verið hluti af SRS bókunarkerfinu sem í dag er orðið að Worldhotels- hótelkeðjunni.
Worldhotels er 11. stærsta hótelkeðja sinnar tegundar í heiminum með yfir 500 hótel víðsvegar um allan heim.
Einkunnarorð Worldhotels eru : "unique hotels for unique people" . En þau einkunnarorð falla afar vel að ímynd Hótel Holts þar sem sérstaðan er í fyrirrúmi og hver og einn viðskiptavinur er einstakur.
Veitingastaðurinn
Veitingastaður hótelsins, Gallery Restaurant, er í fremstu röð veitingahúsa á Íslandi og hefur það verið frá upphafi. Húsið hefur alið af sér helstu fagmenn stéttarinnar, hvort heldur sem er í matreiðslu eða framreiðslu, í gegnum árin og hafa margir þeirra unnið til verðlauna.
Gallery Restaurant tekur um 70-75 manns í sæti.
Í janúar 2008 voru gagngerar endurbætur gerðar á eldhúsi hótelsins og sérsmíðuð eldavél flutt inn frá Molteni í Frakklandi. Þessi stórkostlega eldavél er sérhönnuð eftir kröfum yfirmatreiðslumeistara hússins, Friðgeirs Inga Eiríkssonar, og er hún fullkomnasta tæki sinnar tegundar á Íslandi.
Skálholt-bar er notalegur og þægilegur bar þar sem hægt er að njóta ómótstæðilegra veiga, en þar er að finna eitt helsta malt viskísafn á Íslandi og koníaks og armaníaks. Barinn er skreyttur teikningum eftir meistara Kjarval.
Þingholt er funda- og veislusalur hótelsins og tekur allt að 60 manns í sæti og 130 manns í standandi móttöku.
Rekstraraðilar hússins
Eiríkur Ingi Friðgeirsson, fyrrum yfirmatreiðslumeistari, gerðist hótelstjóri og rekstraraðili hússins árið 2004 en í byrjun árs 2008 gekk sonur hans Friðgeir Ingi Eiríksson í lið með honum sem yfirmatreiðslumeistari eftir nokkur farsæl ár á Michelin-stjörnu veitingastað í Frakklandi. Vorið 2011 hættu þeir svo með hótelreksturinn en einbeita sér þess í stað að veitingarekstrinum og hafa bætt við sig rekstri Viðeyjarstofu í þokkabót. Við hótelinu tók Snorri Valsson, sem hafði starfað fyrir feðgana í rúm 3 ár sem gestamóttökustjóri. Hann rekur hótelhlutann núna fyrir hönd Geirlaugar Þorvaldsdóttur.
|