Stærri svíta

Hótel Holt býður gestum sínum upp á fjórar stærri svítur sem allar eru sérstaklega huggulega innréttaðar og vel útbúnar með öllum fyrsta flokks þægindum og aðstöðu eins og kröfur nútímans gera ráð fyrir.

Allar svíturnar eru tvískiptar með eiginlegu svefnherbergi og setustofu. Í þessum herbergjum er einnig hægt að búa um sófa þannig að til verður svefnaðstaða fyrir allt að tvo gesti til viðbótar. Þessi tegund herbergja er tilvalin fyrir fjölskyldur eða viðskiptaferðamenn sem vilja taka á móti gestum á herbergi sínu á meðan á dvöl stendur.

Á öllum svítum hótelsins er að finna minibar, gervihnattarsjónvarp (2) með aðgengi að helstu sjónvarpsrásum, hárþurrku, baðsloppa, tvo síma, kaffivél, buxnapressu og öryggishólf. Auk þess er þráðlaust internet á öllum herbergjum, gestum okkar að kostnaðarlausu.

 

Hótel Holt - Bergstadastraeti 37 - 101 Reykjavik - Iceland - Tel +354 552 5700 Fax +354 562 3025 - e-mail holt@holt.is