Herbergjaþjónusta

Hótel Holt er fyrsta flokks fjögurra stjörnu hótel með 41 herbergi á fjórum hæðum.

Hótel Holt er með fjórar tegundir herbergja í boði fyrir gesti sína og því ætti að vera auðvelt fyrir alla að finna herbergi við sitt hæfi. Öll herbergi hótelsins eru smekklega innréttuð í klassískum stíl og útbúin með það í huga að standast ströngustu kröfur viðskiptavinarins hverju sinni.

Hótel Holt er opið allan ársins hring

*   Gestamóttaka hótelsins er opin allan sólarhringinn.

*   Starfsfólk móttöku getur bókað borð á veitingahúsum, dagsferðir og bílaleigubíla fyrir gesti

*   Vinnuaðstaða með tveimur tölvum og prentara er til afnota fyrir gesti á móttökusvæði hótelsins

*   Herbergjaþjónusta er frá kl. 09:00 - 22:00

*   Morgunverðarhlaðborð er framreitt frá kl. 07:00 - 10:00

*   Innritun er frá kl. 14:00 //   Útskrift er til kl 12:00

*   Háhraða internettenging er á öllu hótelinu og er hótelgestum að kostnaðarlausu

*   Lítil líkamsræktaraðstaða og nuddstofa er á hótelinu til afnota fyrir hótelgesti. Að auki fá hótelgestir frítt í
     líkamsræktina World Class

*  Hraðhreinsunarþjónusta er alla virka daga.

*  Bílastæði eru við hlið hótelsins og gegnt því. Þau eru ætluð gestum hótelsins og eru þeim að kostnaðarlausu.

 

Hótel Holt - Bergstadastraeti 37 - 101 Reykjavik - Iceland - Tel +354 552 5700 Fax +354 562 3025 - e-mail holt@holt.is