Gallery Restaurant

Veitingastaðurinn á Hótel Holti, Gallery Restaurant, hefur allt frá opnun þess árið 1965 verið í allra fremstu röð á Íslandi. Tímarnir breytast en ógleymanlegar kvöldstundir á Holtinu eru eitthvað sem alltaf er hægt að treysta á.

Gallery Restaurant hefur aldrei verið betri en nú, hvort sem um er að ræða kvöldverð í félagsskap fjölskyldu og vina eða gómsætan hádegisverð.

Friðgeir Ingi Eiríksson, hinn margverðlaunaði yfirmatreiðslumeistari, og hans aðstoðarmenn sjá til þess að glæsilegur matseðillinn sé framreiddur af metnaði og mikilli fagmennsku, þar sem upplifunin er höfð að leiðarljósi. Það er ástæða fyrir því að gestir okkar koma alltaf aftur og aftur.

Í janúar 2008 var eldhús Gallery Restaurants endurinnréttað og ný, sérhönnuð eldavél flutt inn frá Frakklandi. Þetta hefur gert það að verkum að öll vinnsla og matreiðsla er auðveldari en áður og það skilar sér inn á borð til þín með einstökum réttum af glæsilegum matseðlum okkar.

Sú nýbreytni hefur verið í boði í vetur að fagmenn okkar bjóða stoltir upp matreiðslunámskeið fyrir áhugasama, þar sem meistararnir deila leyndardómum sínum með þér!

Einstakt umhverfi, frábær matur og úrvalsþjónusta hafa í meira en fjóra áratugi verið aðalsmerki veitingastaðarins Gallerys á Hótel Holti.
- Leyfðu þér að njóta.

Gallery Restaurant er opinn 12:00-14:30 og 18:00-22:30 alla daga vikunnar.

Gómsætur matur og gott verð einkenna hádegisverðamatseðilinn og kvöldstundirnar verða ógleymanlegar.
Sjá má matseðlana hér og bókið hér.

 

 

 

Hótel Holt - Bergstadastraeti 37 - 101 Reykjavik - Iceland - Tel +354 552 5700 Fax +354 562 3025 - e-mail holt@holt.is