|
Friðgeir Ingi Eiríksson rekur Hótel Holt ásamt föður sínum Eirík Inga Friðgeirssyn. 
Friðgeir Ingi útskrifaðist sem matreiðslumaður frá Hótel- og matvælaskólanum árið 2001. Strax á námstíma sínum sóttist hann eftir reynslu og þekkingu á sínu sviði og starfaði um tíma hjá Leu Linster í Luxemborg.
Eftir að námi lauk fluttist Friðgeir til Frakklands þar sem hann starfaði í um 5 ár. Friðgeri var yfirmatreiðslumaður á Michelin veitingarstaðnum Domaine de Clairfontaine við hlið Philippe Girardon sem var matreiðslumaður Frakklands árið 1997.
Árið 2007 fór Friðgeir fyrir Íslands hönd í matreiðslukeppnina Bocuse d´Or sem er allra stærsta keppni sinnar tegundar í heiminum og hafnaði hann í áttunda sæti.
Eftir keppnina snéri Friðgeir aftur á sinn heimastað, Hótel Holt, og gekk inn í rekstur hússins með föður sínum.
Í byrjun árs 2008 var ráðist í miklar endurnýjungar á eldhúsi veitingastaðarins að frumkvæði Friðgeirs. En hann ásamt aðstoðarmönnum sínum hannaði nýtt eldhús þar sem allt var endurinnréttað og ný, sérhönnuð eldavél flutt inn frá Frakklandi.
Nordice Prize dómnefndin tilnefni Gallery Restaurant sem besta veitingarstað Íslands árið 2012.
Þetta hefur gert það að verkum að öll vinnsla og matreiðsla er auðveldari en áður og það skilar sér inn á borð til gesta okkar með einstökum réttum af glæsilegum matseðlum okkar.

|